Syndis býður upp útvistun umsjónar með upplýsingaöryggisfræðslu þar sem fræðsla er framkvæmd með reglulegum könnunum og stuttum myndböndum AwareGO sem aðgengilegt er á 18 tungumálum, þar á meðal íslensku, ensku, pólsku og norðurlandamálunum
Útvistun fræðslu í net- og upplýsingaöryggi til Syndis byggir á þekktum aðferðum sem veita faglega og árangursríka fræðslu til starfsfólks á þeim sviðum sem þörf er á. Syndis kannar reglulega þekkingu starfsfólks á völdum þáttum. Fylgt er eftir með sérsniðinni fræðslu fyrir hvern og einn starfsmann, deild eða starfssvið. Þetta er endurtekið reglulega til að viðhalda góðri öryggisvitund.
Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að þorri innbrota í upplýsingakerfi fyrirtækja nýtir sér veikleika hjá starfsfólki eða verktökum þess. Starfsfólk þarf að fá góða og viðeigandi fræðslu á sviði upplýsingaöryggis enda er ekki hægt að gera ráð fyrir að það afli sér þekkingarinnar á annan hátt. Með viðeigandi fræðslu getur starfsfólkið orðið sterkasti hlekkurinn í keðjunni.
Myndböndin sem notast er við eru stutt, skemmtileg og fræðandi. Þau hjálpa starfsfólki að greina hættur og benda þau á uppbyggilegan hátt á hvernig best er að hegða sér til að auka upplýsingaöryggi.
Starfsfólk fær fræðsluefni á þeim sviðum sem það þarf fræðslu. Fræðslan er viðeigandi eftir starfssviði og þekkingu. Fjármálafulltrúi þarf öðruvísi fræðslu en starfsmaður í vöruhúsi. Starfsmaður sem hefur fengið fræðslu oft þarf öðruvísi efni en sá sem er nýr.
Þekkingunni þarf að viðhalda á kerfisbundinn hátt. Útvistun til Syndis setur setur upplýsingaöryggisfræðslu á dagskrá skv. fyrirfram ákveðinni áætlun. Áætlunin tryggir að fræðslan frestist ekki vegna anna eða tilfallandi verkefna í fyrirtækinu.