Almennir skilmálar Syndis
1. INNGANGUR
Skilmálar þessir gilda um öll viðskipti og samninga sem Syndis ehf., kt. 580113-0600 („Syndis“ eða „félagið“) gerir við viðskiptavini félagsins.
Skilmálar þessir ásamt rammasamningi um þjónustu, viðaukum við rammasamninginn, fylgigögnum og leiðbeiningum mynda að jafnaði heildarsamning aðila um viðskipti þeirra („samningurinn“ eða „samningur aðila“). Stangist ákvæði skilmála þessa á við ákvæði sem finna má í rammasamningi aðila skulu ákvæði þess síðarnefnda ganga framar þessum skilmálum.
Samningur telst hafa komist á milli félagsins og viðskiptavinar þegar aðilar hafa skrifað undir rammasamning um þjónustu, viðskiptavinur hefur samþykkt sérskilmála, samningsviðauka eða tilboð félagsins um þjónustu innan gildistíma slíks tilboðs, eða þegar viðskiptavinur byrjar að nýta þjónustu félagsins.
Sé ekki kveðið á um gildistíma samnings í samningi aðila skal hann gilda ótímabundið þar til honum er sagt upp og skal uppsagnarfrestur viðskiptavinar þá vera 3 mánuðir og skal uppsögn taka gildi um mánaðarmót.
Félagið getur hvenær sem er, fyrirvara- og bótalaust, sagt upp samningi við viðskiptavin vegna brots hans á samningsskyldum. Séu fleiri en einn samningur í gildi milli viðskiptavinar og félagsins getur samningsbrot í einum samningi leitt til þess að félaginu sé heimilt að segja upp öllum samningum sínum við viðkomandi viðskiptavin.
Við lok samnings, af hvaða ástæðu sem er, skulu aðilar skila hvor öðrum hvers konar eignum og efni, þar með talið hvers konar búnaði, sem látinn hefur verið í té og sannanlega er í eigu gagnaðila eða hann hefur ráðstöfunarrétt yfir. Vinna sem fellur til vegna útleiðingar viðskiptavinar við lok samnings er gjaldfærð á viðskiptavin samkvæmt gjaldskrá félagsins.
2. ÞJÓNUSTA SYNDIS
Syndis veitir viðskiptavini þjónustu á sviði netöryggis. Þjónustunni er lýst í viðeigandi viðaukum við rammasamning aðila, en hún kann m.a. að fela í sér ráðgjöf, vöktun, viðbrögð eða annars konar fagþjónustu og/ eða aðgang að vél- eða hugbúnaði („þjónustan“).
Syndis skal gera þjónustuna aðgengilega viðskiptavini í samræmi við samning aðila að því gefnu að viðskiptavinur nýti þjónustuna í samræmi við ákvæði þau sem þar koma fram.
Syndis skal afhenda viðskiptavini viðeigandi fylgigögn og leiðbeiningar í því skyni að aðstoða hann við notkun þjónustunnar.
Syndis kann að skipuleggja tímabil þar sem þjónustan eða hugbúnaður verður ekki tiltækur, í því skyni að bæta, lagfæra eða framkvæma viðhald á þjónustunni. Þegar unnt er, mun Syndis taka tillit til viðskiptahagsmuna viðskiptavinar með því að tilkynna viðskiptavini með tölvupósti fyrirfram um uppfærslur, viðhald eða aðrar fyrirhugaðar aðgerðir sem kunna að leiða til verulegrar truflunar á þjónustu. Í undantekningartilvikum kann að vera þörf á neyðarviðhaldi til að bregðast við verulegum öryggistengdum atvikum eða tæknilegum vandamálum sem hafa áhrif á aðgengi að þjónustunni og ekki er unnt að bíða með eða leysa með fyrirhuguðu viðhaldi. Syndis mun leitast við að tilkynna viðskiptavini um neyðarviðhald með tölvupósti með að minnsta kosti einnar (1) klukkustundar fyrirvara.
Aðgengi að hugbúnaði frá öðrum en félaginu („þriðja aðila“) er seldur á grundvelli skilmála viðkomandi þriðja aðila, þ.e. framleiðandans eða eiganda réttindanna. Yfirleitt er um að ræða sölu á óframseljanlegum, hugverkaréttarvörðum réttindum til afmarkaðrar notkunar þannig að eignarréttur til hugbúnaðarins er ekki seldur, heldur aðeins leyfi til að nota hann, háð þeim takmörkunum og bundið þeim skilyrðum sem framleiðandi eða eigandi hugbúnaðarins setur. Hugbúnað má ekki selja, leigja eða framselja eða afhenda öðrum.
Skilmálar sem gilda um þjónustu þriðja aðila, þar með talið notkunarskilmálar og skilmálar um vinnslu persónuupplýsinga, gilda eingöngu milli viðskiptavinar og viðkomandi þriðja aðila. Syndis ábyrgist hvorki né styður þjónustu þriðja aðila, nema annað sé sérstaklega tekið fram í rammasamningi um þjónustu (þar með talið í viðaukum).
3. NOTKUN ÞJÓNUSTUNNAR
Viðskiptavinur og notendur á vegum viðskiptavinar skulu nýta þjónustuna eingöngu í samræmi við almenna skilmála þessa og rammasamning aðila, þar með talið viðeigandi viðauka, leiðbeiningar og fylgiskjöl eftir því sem við á.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á athöfnum allra notenda á hans vegum, og að þeir fari að ákvæðum samningsins.
Viðskiptavinur skal innleiða fullnægjandi öryggisráðstafanir til að koma í veg fyrir óheimilan aðgang að eða notkun á þjónustunni eða aðgang að reikningi.
Viðskiptavinur skal ekki, í tengslum við notkun þjónustunnar, nálgast, vista, dreifa eða miðla efni sem er ólögmætt (þar með talið óheimilar innbrotstilraunir í tölvukerfi eða sambærilegar athafnir) eða með öðrum hætti brýtur gegn lögum eða veldur tjóni eða skaða á einstaklingum eða eignum.
Viðskiptavinur og notendur skulu fara að öllum gildandi lögum og hafa tilskilin leyfi og heimildir sem nauðsynleg eru vegna starfsemi þeirra.
Viðskiptavini ber að gera félaginu kleift að sinna þeim hluta þjónustunnar sem fer fram á vinnustað viðskiptavinar og eftir atvikum hjá þriðja aðila, s.s. með því að veita starfsfólki félagsins fullnægjandi aðgang að nauðsynlegum rýmum.
Viðskiptavinur ber jafnframt ábyrgð á að veita félaginu fullnægjandi upplýsingar svo félagið geti sinnt þjónustu sinni. Þá bera viðskiptavinir ábyrgð á að þeim leiðbeiningum og fyrirskipunum sem þeir veita félaginu, sem og á réttmæti þeirra upplýsinga sem gefnar eru félaginu.
4. ÓKEYPIS- OG PRUFUÞJÓNUSTA
Þjónusta sem skilgreind er sem prufuþjónusta (e. trial service) eða ókeypis þjónusta er veitt af Syndis „eins og hún er“ án nokkurra ábyrgða af neinu tagi. Syndis ber enga ábyrgð og verður ekki skaðabótaskylt vegna tjóns sem hlýst af notkun slíkrar þjónustu. Ef slík undanþága frá ábyrgð telst ekki gild samkvæmt lögum sem um samninginn gilda, skal hámarksábyrgð Syndis vera takmörkuð við 150.000 krónur.
5. VIÐBÓTARÞJÓNUSTA
Viðskiptavinur getur hvenær sem er eftir undirritun upphaflegs rammasamnings óskað eftir viðbótarþjónustu frá Syndis og skal þá undirrita nýjan uppfærðan rammasamning vegna slíkrar viðbótarþjónustu. Vegna sérsniðinna verkefna kunna aðilar að undirrita sérstaka verkáætlun eða verklýsingu þar sem m.a. kann að vera kveðið á um þóknun, áfanga, tímamörk eða önnur viðeigandi skilyrði, eftir því sem við á, og verða slík gögn þá hluti af samningi aðila.
6. PERSÓNUVERND OG GAGNAÖRYGGI
Syndis kemur fram sem ábyrgðaraðili í skilningi persónuverndarlaga hvað varðar vinnslu persónuupplýsinga einstaklinga sem eiga í viðskiptum við félagið sem og tengiliða sem koma fram fyrir hönd fyrirtækja og annarra lögaðila í viðskiptum við félagið. Um vinnslu félagsins á slíkum upplýsingum vísast til Persónuverndarstefnu félagsins sem finna má á vefsíðu Syndis.
Komi til þess að Syndis vinni persónuupplýsingar fyrir hönd viðskiptavinar í tengslum við þjónustuna, kemur viðskiptavinur fram sem ábyrgðaraðili slíkrar vinnslu í skilningi persónuverndarlaga og félagið sem vinnsluaðili. Undir slíkum kringumstæðum gilda skilmálar félagsins um vinnslu persónuupplýsinga („vinnsluskilmálar Syndis“).
Að því marki sem almenn, samantekin eða tölfræðileg gögn innihalda ekki persónuupplýsingar og verða ekki raktar beint til viðskiptavinar, veitir viðskiptavinur Syndis heimild til að nýta slík gögn sem verða til við veitingu þjónustunnar eða leiða af notkun viðskiptavinar á henni, í þágu greiningarvinnu og til þess að bæta þjónustu Syndis.
7. TRÚNAÐUR
Aðilar skulu virða sem trúnaðarmál allar þær upplýsingar sem þeir kunna að öðlast vegna framkvæmdar samnings aðila, þ.m.t. um efni samningsins og verðupplýsingar, tæknilegar upplýsingar, vöruáætlanir og hönnun, viðskipta- og markaðsáætlanir, viðskiptamenn, viðskiptasambönd, rekstur, starfsemi, fjármál og viðskiptahætti gagnaðila („trúnaðarupplýsingar“).
Ekki teljast þó til trúnaðarupplýsinga, upplýsingar sem: (i) eru eða verða almennt þekktar, (ii) voru þegar í vörslu gagnaðila, án þess að slíkt hafi komið til vegna brota gegn trúnaðarskuldbindingum, (iii) eru fengnar frá þriðja aðila án þess að brotið hafi verið gegn trúnaðarskuldbindingum, eða (iv) voru þróaðar sjálfstætt af gagnaðila.
8. HUGVERKARÉTTINDI
Skilmálar þessir skulu ekki hafa áhrif á hugverkarétt að hugbúnaði eða öðrum búnaði sem félagið selur viðskiptavini eða veitir viðskiptavini aðgang að. Um rétt viðskiptavinar til notkunar á slíkum réttindum gilda viðeigandi viðaukar um slíka þjónustu og/ eða skilmálar þriðja aðila, sé hann rétthafi.
Í þeim tilvikum þegar þjónusta Syndis felur í sér aðgang að efni, þ.á.m. búnaði, gagnagrunnum, handbókum o.s.frv., sem Syndis hefur þróað eða er rétthafi að, skal allur hugverkaréttur tilheyra Syndis. Þar undir fellur m.a. hvers konar höfundaréttur, vörumerkjaréttur, hönnunarréttur, viðskipta- og atvinnuleyndarmál, sérþekking (e. know-how) sem og einkaleyfi. Á það jafnframt við um efni sem félagið hefur unnið á grundvelli samnings aðila nema um annað sé sérstaklega samið. Ekkert framsal á hugverkaréttindum á sér því stað milli aðila. Á grundvelli samnings aðila skal viðskiptavinur hins vegar fá óframseljanlegt leyfi til að nota viðkomandi efni á gildistíma samnings aðila, eftir því sem við á.
Komi til þess að aðilar þróa eða útbúa hugverkaverndað efni í samvinnu skulu báðir aðilar eignast rétt til þess efnis og hafa aðilar hvor fyrir sig heimild til að ráðstafa því, að því marki sem slík ráðstöfun brýtur ekki gegn öðrum réttindum gagnaðila.
Kjósi viðskiptavinur að veita ábendingar eða tillögur um hvernig bæta megi þjónustuna eða starfsemi Syndis eða tengdra félaga þess („endurgjöf“), skal Syndis heimilt að nýta slíka endurgjöf, m.a. til að bæta þjónustuna.
Allur hugverkaréttur að efni sem viðskiptavinur hefur unnið, hannað og þróað án aðkomu Syndis skal tilheyra viðskiptavini og ekkert framsal á slíku efni á sér stað nema um annað sé samið. Veiti viðskiptavinur félaginu aðgang að slíku efni í tengslum við þjónustuna veitir viðskiptavinur félaginu þar með óframseljanlegt leyfi til að nota efnið á samningstíma og skal viðskiptavinur halda félaginu skaðlausu af hvers konar kröfum þriðja aðila er byggja á því að notkun Syndis á efninu brjóti gegn rétti viðkomandi. Skapist óvissa um hugverkaréttindi félagsins sem félagið hefur veitt viðskiptavini leyfi til að nota á grundvelli samnings aðila, s.s. vegna kröfu þriðja aðila sem telur efni félagsins brjóta gegn rétti viðkomandi, skal félagið ákveða hvort félagið breyti efninu, útvegi viðskiptavini sambærilegt efni eða hvort félagið semji við þriðja aðila um notkun á efninu á meðan ágreiningur er óleystur.
Viðskiptavinur samþykkir að grípa til varna fyrir Syndis gegn hvers kyns kröfum, ásökunum, eða málaferlum sem þriðji aðili beinir að Syndis: (a) þar sem því er haldið fram að gögn viðskiptavinar, eða notkun viðskiptavinar á þeim í tengslum við þjónustuna, brjóti í bága við hugverkaréttindi viðkomandi þriðja aðila; eða (b) sem stafar af ólögmætri notkun viðskiptavinar á þjónustunni eða notkun í andstöðu við samning aðila. Viðskiptavinur skal bæta Syndis allt tjón, málskostnað, sáttagreiðslur og lögmannsþóknun sem endanlega kunna að falla á Syndis, vegna slíkrar kröfu.
Notkun á heiti félags eða vörumerki annars aðila í markaðsefni, á vefsíðum eða í kynningarefni er einungis heimil að fengnu fyrirfram skriflegu samþykki viðkomandi aðila, til dæmis með tölvupósti. Slík notkun skal takmörkuð við að vísa til samstarfs aðila eða auðkenna Syndis sem þjónustuveitanda viðskiptavinar og viðskiptavin sem viðskiptavin Syndis.
Nema um annað sé sérstaklega samið skulu allar fréttatilkynningar, opinberar yfirlýsingar og önnur kynningarstarfsemi aðila sem varðar samning aðila þar með talið notkun nafns og vörumerkis, háðar fyrirfram samþykki beggja aðila áður en slíkar tilkynningar eða kynningar fara fram.
9. ÞÓKNANIR OG GREIÐSLUR
Gjöld fyrir búnað og þjónustu Syndis eru listaverð í gildandi verðskrám félagsins hverju sinni, sérverð eða önnur tilgreind verð í samningi. Öll verð eru tilgreind án virðisaukaskatts nema annað sé tekið fram.
Félagið áskilur sér rétt til að breyta verð- og gjaldskrám eftir þörfum hverju sinni. Félagið áskilur sér rétt til þess að breyta verði, þ.m.t. í samræmi við breytinga á vísitölu og/eða í samræmi við gengisþróun krónunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum vegna þjónustu frá þriðju aðilum sem félagið greiðir fyrir í erlendri mynt. Skulu slíkar verðbreytingar almennt tilkynntar með 30 daga fyrirvara á vefsíðu Syndis. Við óvenjulegar aðstæður svo sem við gengislækkun á skömmum tíma, er félaginu heimilt að tilkynna viðskiptavini um verðbreytingar með 3 daga fyrirvara.
Staðgreiða skal fyrir búnað og þjónustu, nema samið sé sérstaklega um reikningsviðskipti. Í slíkum tilfellum sendir félagið viðskiptavini mánaðarlega reikning vegna sölu á þjónustu. Félaginu er heimilt að reikningsfæra samningsbundna þjónustu mánuð fram í tímann eða í samræmi við skilmála frá birgjum ef krafist er fyrirfram greiðslu fyrir notkun á hverskonar þjónustu, hug- eða vélbúnaði. Sú þjónusta sem greidd er eftir mældri notkun er almennt reikningsfærð í lok mánaðar eða byrjun næsta mánaðar, enda liggi fyrir allar nauðsynlegar upplýsingar um notkun. Virðisaukaskattur leggst við alla reikninga. Gjalddagi reiknings miðast við útgáfudag en almennt skal eindagi vera 20 dögum eftir gjalddaga. Falli reikningur eða aðrar samningsskuldbindingar í eindaga ber viðskiptavini að greiða dráttarvexti í samræmi við III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001 frá eindaga og til greiðsludags.
Athugasemdir skulu gerðar við reikninga án tafar og eigi síðar en á eindaga þeirra. Teljast reikningar ella samþykktir af hálfu viðskiptavinar. Gjald fyrir þjónustu er ekki endurgreitt.
Viðbótarþjónusta telst öll sú þjónusta sem ekki fellur innan samnings aðila. Greiða skal fyrir alla viðbótarþjónustu sem félagið vinnur í þágu viðskiptavinar að hans ósk samkvæmt gjaldskrá Syndis eða samþykktum viðskiptakjörum milli aðila. Sé það nauðsynlegt, skal félaginu heimilt að grípa til aðgerða til varnar tjóni fyrir viðskiptavin án samþykkis hans og skal farið með slíkar aðgerðir sem viðbótarþjónustu.
Sé ekki samið á annan veg, skal viðskiptavinur greiða fyrir allan útlagðan kostnað, ferða- og flutningskostnað sem tengist veittri þjónustu.
10. ÁBYRGÐ Á GALLA
Félagið ber ábyrgð á því að þjónusta sé í samræmi við samning aðila, að teknu tilliti til ábyrgðartakmarkana í skilmálum þessum og samningi aðila.
Ef viðskiptavinur leggur ekki fram kvörtun innan árs frá þeim degi er hann veitti þjónustu viðtöku, eða innan tveggja ára sé um þjónustukaup neytenda að ræða, getur hann ekki síðar borið gallann fyrr sig. Viðskiptavinur getur ekki gert neina kröfu, af hvaða tegund eða tilefni hún kann að vera, á hendur félaginu eftir að meira en tvö ár eru liðin frá því að kröfuefnið varð til.
Ábyrgð á hugbúnaði sem þróaður er af félaginu, er háð því að notkun hugbúnaðar hafi verið í samræmi við kerfisskráarlýsingar félagsins, handbækur og aðrar leiðbeiningar um notkun. Það sama á við um hvers kyns þjónustu sem veitt er af félaginu.
Félagið ábyrgist ekki að hugbúnaður sé villulaus, án rekstrartruflana eða að allar villur hafi verið lagfærðar. Félagið ber framleiðandaábyrgð á hugbúnaði sem félagið hefur sjálft þróað. Í þeim tilvikum sem félagið er endursöluaðili hugbúnaðar gilda þær ábyrgðartakmarkanir sem eigandi hugbúnaðar hefur sett, svo framarlega sem slíkar takmarkanir stangast ekki á við íslensk lög.
11. UNDANTEKNINGAR Á ÁBYRGÐ
Öll þjónusta er veitt án skuldbindinga um viðbragðstíma. Félagið ábyrgist ekki að búnaður eða þjónusta sé gallalaus, virki án reksturstruflana, að hugbúnaður starfi rétt eða að allar hugbúnaðarvillur sem og aðrar villur séu lagfærðar.
Þjónusta Syndis, kann eftir því sem við á að byggja á upplýsingum og gögnum frá viðskiptavini. Syndis getur ekki ábyrgst aðgengi að eða gæði slíkra gagna og ber enga ábyrgð á vandamálum sem tengjast slíkum gögnum.
Að því marki sem ekki er sérstaklega mælt fyrir um annað í samningi aðila veitir hvorugur aðili hinum ábyrgðaryfirlýsingu af neinu tagi. Félagið ábyrgist þ.m.t. ekki að þjónustan uppfylli kröfur um hæfi í ákveðnum tilgangi.
12. TAKMARKANIR Á SKAÐABÓTASKYLDU
Verði viðskiptavinur fyrir tjóni vegna þjónustu félagsins kann viðskiptavinur að eiga rétt til skaðabóta úr hendi félagsins.
Réttur viðskiptavinar til skaðabóta úr hendi félagsins skal þó takmarkast við beint tjón og bótaábyrgð félagsins nær ekki til óbeins eða afleidds tjóns, þ.m.t. rekstrartaps, sektarfjárhæða, tapaðra gagna sem leiða kann af notkun á hugbúnaði eða ómöguleika á notkun hugbúnaðar, missi hagnaðar eða viðskiptavildar eða vanefndar viðskiptavinar á samningi við þriðja aðila. Þá er félagið ekki bótaskylt vegna tjóns sem ekki verður rakið til ásetnings eða stórkostlegs gáleysis félagsins eða þeirra starfsmanna sem félagið ber ábyrgð á.
Skapist bótaskylda á hendur félaginu skal bótaábyrgð félagsins takmarkast við fjárhæð að jafnvirði kr. 1.200.000, eða þriggja mánaða þjónustugjald fyrir þjónustuna sem orsakaði tjónið, hvort sem lægra er. Ef þjónustugjaldið sem um ræðir var breytilegt skal miða við miðgildi þeirra mánaðarlegu greiðslna sem viðskiptavinur hefur greitt fyrir þjónustuna á tólf (12) mánuðum næst á undan þeim degi þegar krafa stofnaðist.
13. ÓVIÐRÁÐANLEG ATVIK
Geti félagið, vegna óviðráðanlegra atvika, ekki efnt skyldur sínar gagnvart viðskiptavini, er félagið laust undan öllum skuldbindingum sínum um þann tíma sem óviðráðanleg atvik (force majeure) standa yfir og samningsaðili á ekki rétt til að beita vanefndaúrræðum gagnvart félaginu, þ.m.t. kröfum um endurgreiðslu, afslátt, skaðabætur, uppsögn eða riftun.
Með óviðráðanlegum atvikum er átt við atburð eða aðstæður sem ekki eru á valdi félagsins enda sé þannig háttað um þau að félaginu hafi ekki verið unnt að yfirvinna þau með eðlilegum ráðum. Án þess að takmarka almennt gildi þess sem að framan greinir, skulu slíkir atburðir og atvik m.a. taka til styrjalda, uppreisna, skemmdarverka, óeirða, farsótta, náttúruhamfara, aðgerða stjórnvalda svo sem á sviði gjaldeyris- og viðskiptamála, viðskiptabanna, hafnbanna, almennra samgönguhindrana, flutningsbanna, orkuskorts, hvers kyns netárása, óviðráðanlegra atvika í samskiptum við undirverktaka og birgja og hvers kyns ámóta atvika sem valda röskun á efndum félagsins, þ.m.t. ef birgjar eða þjónustuaðilar félagsins geta ekki uppfyllt skuldbindingar sínar gagnvart félaginu á grundvelli óviðráðanlegra atvika sem leiða til þess að félagið geti ekki efnt skuldbindingar sínar gagnvart samningsaðila. Komi til þess að óviðráðanleg atvik standi yfir í 30 daga samfellt eða lengur getur félagið rift eða sagt upp samningi fyrirvaralaust án þess að baka sér bótaskyldu.
14. VANEFNDIR
Félagið áskilur sér rétt til að hætta að veita og eftir atvikum loka á þjónustu til viðskiptavinar („stöðvun“) komi til vanefnda af hálfu viðskiptavinar. Til að taka af allan vafa skal viðskiptavinur ekki eiga rétt á neinum þjónustueiningum eða inneignum samkvæmt viðeigandi viðaukum á meðan stöðvun stendur yfir.
Til viðbótar öðrum réttindum félagsins er félaginu heimilt án undanfarandi tilkynningar til viðskiptavinar að:
- synja viðskiptavini um aðgang að gögnum, sem vistuð eru á búnaði félagsins, hafi reikningur ekki verið greiddur innan 60 daga frá eindaga,
- eyða gögnum viðskiptavinar, sem vistuð eru á búnaði félagsins, hafi reikningur ekki verið greiddur innan 150 daga frá eindaga.
Báðir samningsaðilar geta rift samningi án fyrirvara, ef um er að ræða verulega vanefnd af hálfu hins aðilans í samræmi við almennar reglur.
Óháð framangreindu er félaginu enn fremur heimilt að beita öllum vanefndaúrræðum, þ.m.t. riftun, ef:
- viðskiptavinur greiðir ekki reikning félagsins innan 30 daga eftir eindaga,
- viðskiptavinur uppfyllir ekki samningsbundna skyldu sína við félagið innan 30 daga frá dagsetningu skriflegrar áskorunar frá félaginu um að efna skyldu sína,
- viðskiptavini er veitt heimild til greiðslustöðvunar, hann fær heimild til að leita nauðasamninga eða verður gjaldþrota eða ef skipaður er skiptastjóri, slitastjórn, fjárhaldsmaður, stjórnandi eða annar sambærilegur aðili yfir öllum eða verulegum hluta eigna viðskiptavinar, eða viðskiptavinur gerir nauðasamninga við kröfuhafa, eða ef sambærilegar aðstæður koma upp samkvæmt lögum viðkomandi lögsögu.
- ef breytingar verða á yfirráðum viðskiptavinar.
Á meðal þeirra vanefndaúrræða sem félaginu er heimilt að beita hafi viðskiptavinur vanefnt skyldur sínar gagnvart félaginu, þ.m.t. með framangreindum hætti, er að: taka búnað, þ.m.t. hugbúnað, í sínar vörslur eða gera hann ónothæfan.
Verði samningi rift af hálfu félagsins ber viðskiptavini að greiða áfallin gjöld samkvæmt samningi aðila auk alls kostnaðar félagsins. Enn fremur skal viðskiptavinur halda félaginu skaðlausu af öllum útgjöldum og tekjumissi, sem félagið kann að verða fyrir vegna vanefnda viðskiptavinar á samningi.
15. ÝMIS ÁKVÆÐI
Öll ákvæði sem samkvæmt efni sínu eða orðalagi eiga að halda gildi sínu eftir lok eða riftun samningsins skulu halda fullu gildi svo lengi sem nauðsynlegt er til að tryggja framkvæmd þeirra, þar með talið 4. gr. (Ókeypis- og prufuþjónusta), 7. gr. (Trúnaður), 8. gr. (Hugverkaréttindi), 9. gr. (Þóknanir og greiðslur), 11. gr. (Ábyrgð) og 12. gr. (Takmarkanir á bótaskyldu) og 16. gr (Ýmis ákvæði).
Komi í ljós að eitthvert ákvæði eða hluti ákvæðis í samningi aðila sé ólögmætt eða óframkvæmanlegt, í heild eða að hluta, skal slíkt ákvæði eða hluti þess að því marki teljast ógilt án þess að það hafi áhrif á gildi eða framkvæmd annarra ákvæða samningsins, sem skulu að fullu halda gildi sínu.
Hvorugur aðili má framselja réttindi sín eða skyldur samkvæmt samningi aðila, að hluta eða í heild, án fyrirfram skriflegs samþykkis hins aðilans, að undanskildu framsali Syndis til tengds aðila eða samstarfsaðila Syndis.
16. GILDANDI LÖG OG LÖGSAGA
Allur ágreiningur eða mál sem rís af eða í tengslum við skilmála þessa eða samning aðila skal lúta íslenskum lögum og heyra undir einkalögsögu íslenskra dómstóla.