Netárás í beinni
Klukkan er korter yfir fjögur á föstudegi. Kerfi hegða sér undarlega, starfsfólk kemst ekki inn og fyrsta fyrirspurnin frá fjölmiðlum er þegar komin í pósthólfið. Hvað gerir þú?

Salurinn ræður viðbrögðunum
Klukkan er korter yfir fjögur á föstudegi. Kerfi hegða sér undarlega, starfsfólk kemst ekki inn og fyrsta fyrirspurnin frá fjölmiðlum er þegar komin í pósthólfið. Hvað gerir þú?
Í tilefni af netöryggismánuðinum bjóðum við til fyrsta viðburðarins í nýjum höfuðstöðvum Syndis í Kópavogi. Þar setjum við upp raunverulega viðbragðsæfingu, svokallaða tabletop-æfingu. Munurinn er sá að í stað þess að nokkrir stjórnendur sitji við fundarborð tekur allur salurinn þátt. Þú svarar í símanum þínum, kýst um næstu skref og sérð samstundis hvað aðrir í salnum völdu. Sú leið sem flestir velja er sú leið sem við förum. Svo skoðum við hvað gerðist næst, og hvers vegna.
Sviðsmyndirnar eru byggðar á raunverulegum atvikum úr íslensku og norrænu atvinnulífi. Engin nöfn eru nefnd og engin fyrirtæki, en atburðarásin verður kunnugleg þeim sem hafa staðið í þessu.
Þú þarft ekki að vera sérfræðingur í netöryggi. Flestar ákvarðanir í alvöru atviki eru ekki tæknilegar. Þær snúast um hver má taka ákvörðunina, hvenær á að láta vita, hverju á að svara og hvað má bíða.
Dagskrá
Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis, setur viðburðinn og Ragnar Sigurðsson hjá Syndis leiðir æfinguna. Kaffi og kleinur í boði.
Fyrir hverja?
Stjórnendur, upplýsingatækni- og öryggisfólk, samskiptastjóra, lögfræðinga og alla sem myndu enda inni í herberginu ef eitthvað gerðist í raun.
Hvað þarftu?
Bara símann þinn.
Hvenær: Þriðjudaginn 20. október kl. 8:30 til 10:00
Hvar: Höfuðstöðvar Syndis, Dalvegi 30a, 201 Kópavogi
Bílastæði geta verið af skornum skammti og því mælum við með að mæta tímanlega.
Syndis hefur unnið að netöryggi fyrir norræn fyrirtæki í þrettán ár og stýrt raunverulegum atvikum. Æfingarnar okkar byggja á því sem raunverulega gerist, líka því sem ratar aldrei í fréttir.
Hvað tekur þú með þér?
- Skýrari mynd af því hver tekur hvaða ákvörðun þegar tíminn er naumur.
- Tilfinningu fyrir því hvenær ber að tilkynna atvik og til hverra.
- Hugmynd um hverju á að svara fjölmiðlum, viðskiptavinum og starfsfólki fyrstu klukkustundirnar.
- Innsýn í hvernig aðrir í sömu stöðu myndu bregðast við, og hvar skoðanir skiptast.
- Spurningar sem vert er að spyrja um ykkar eigin viðbragðsáætlun.