Ísskógar sameinast Syndis
Sérþekking Ísskóga mætir víðfeðmu öryggisneti Syndis.
Ísskógar var stofnað árið 2018 af Oddi Hafsteinssyni til að veita fyrirtækjum óháða og sérhæfða ráðgjöf í upplýsingaöryggi. Með því að stíga skrefið inn í Syndis færð þú áfram sömu persónulegu þjónustuna og áratuga reynslu Odds, en færð í kaupbæti aðgang að einu víðtækasta sérfræðingahópi landsins í netöryggi.
Ráðgjöf byggð á trausti og áratuga reynslu
Oddur Hafsteinsson - Sérfræðingur í stjórnkerfum upplýsingaöryggis og áhættustýringu
Oddur hefur yfir 25 ára reynslu úr tækni- og öryggisgeiranum. Hjá Syndis mun hann áfram leiða ráðgjöf fyrir sína viðskiptavini, með sérstaka áherslu á ISO 27001, áhættumat og stefnumótun.
